Innlent

Bein útsending frá setningu Alþingis

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands ganga ásamt fylktu liði frá þinghúsinu í Dómkirkjuna við setningu Alþingis í dag.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands ganga ásamt fylktu liði frá þinghúsinu í Dómkirkjuna við setningu Alþingis í dag. vísir/vilhelm
Vísir er með beina útsendingu frá setningu 146. löggjafarþings Íslendinga og má fylgjast með útsendingunni í spilaranum neðst í fréttinni.

Á vef Alþingis kemur fram að þingsetningarathöfnin hefjist klukkan 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, en forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, predikar og sér Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, setur Alþingi, 146. löggjafarþing, og að því loknu tekur Steingrímur J. Sigfússon, starfsaldursforseti, við fundarstjórn og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Strengjakvartett leikur tónlist við þingsetningarathöfnina. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til klukkan 16.

Við framhald þingsetningarfundarins klukkan fjögur verða kjörbréf þingmanna afgreidd, drengskaparheit unnin, kosinn forseti Alþingis og varaforsetar og í nefndir þingsins. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna. Þá verður fjárlagafrumvarpinu 2017 dreift á fundinum.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.

Kl. 13.30 Guðsþjónusta.

Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

Kl. 14.20 Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland. Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Gróa Margrét Valdimarsdóttir, fiðlur, Matthías Stefánsson, víóla, og Örnólfur Kristjánsson, selló.

Kl. 14.22 Starfsaldursforseti tekur við fundarstjórn.

Kl. 14.24 Strengjakvartett flytur Smávinir fagrir.

Kl. 14.26 Forseti Íslands gengur úr þingsalnum.

Kl. 14.27 Starfsaldursforseti stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Hlé á þingsetningarfundi fram til klukkan 16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×