Sport

Sjáðu þegar Ísland eignaðist hraustustu konu heims í fjórða sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fimmti og síðasti keppnisdagur í einstaklingsflokki í karla og kvennaflokki á heimsleikunum í crossfit fór fram í Kaliforníu í dag. Íslenska crossfit-fólkið var áberandi meðal efstu manna eins og síðustu ár. Á endanum var það Katrín Tanja Davíðsdóttir sem fagnaði sigri annað árið í röð.

Fimm greinar fóru fram á fimmta og síðasta deginum í einstaklingskeppninni þar af þrjár þeirra í einum hnapp í upphafi. Það var mikil spenna í loftinu enda ekki mörg stig á milli efstu kvenna í einstaklingskeppninni.

Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir voru í baráttunni um sigurinn alveg eins og í fyrra. Niðurstaðan var sú sama og í fyrra. Katrín Tanja vann en Ragnheiður Sara varð að sætta sig við þriðja sætið.

Bein útsending var frá keppninni á Youtube-síðu Crossfit Games og eru allar útsendingarnaer frá fimmta deginum aðgengilegar hér að neðan. Hér fyrir neðan má því sjá það þegar Ísland eignaðist hraustustu konu heims í fjórða sinn. Það er hægt að spóla til baka í hverju myndbandi fyrir sig.

Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir  voru ekki þær einu frá Íslandi sem voru að keppa því Annie Mist Þórisdóttir (13. sæti) og Þuríður Erla Helgadóttir (19.sæti) voru líka meðal tuttugu efstu. Þá endaði Björgvin Karl Guðmundsson í áttunda sæti í karlaflokki, Haraldur Holgersson endaði í áttunda sæti í flokki 16-17 ára drengja og lið Crossfit XY endaði í 34. sæti.

Lokagreinin. Hér ráðast úrslitin Fjórtánda grein mótsins og sú næstsíðasta Fyrstu þrjár greinar dagsins eða Handstand Walk, Suicide Sprint og The Plow

Tengdar fréttir

Ragnheiður Sara komin upp í annað sætið

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er komin upp í annað sætið í einstaklingskeppni kvenna á heimsleikunum í crossfit í Kalifroníu en hún hækkaði sig um tvö sæti með árangri sínum í sjöttu grein keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×