Erlent

Bein útsending: Trump og Pútín ræða við fréttamenn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Trump og Pútín tókust í hendur og ræddu stuttlega við fréttamenn fyrir fund þeirra.
Trump og Pútín tókust í hendur og ræddu stuttlega við fréttamenn fyrir fund þeirra. Vísir/Getty
Áætlað er að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Vladimir Pútín, forseti Rússlands, muni ræða við fréttamenn að loknum fundi þeirra í Helsinki sem hófst fyrir hádegi að íslenskum tíma. Horfa má á beina útsendingu frá fundinum að neðan auk þess sem að fylgst verður með honum í beinni textalýsingu.

Fundi forsetanna hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu enda talsverð spenna á milli ríkjanna tveggja, ekki síst í ljósi ásakana um að Rússar hafi skipt sér af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016.

Trump kom til Helsinki í morgun en Pútín lenti hins vegar ekki í Helsinki fyrr en um klukkan 10 að íslenskum tíma í morgun og seinkaði fundinum af þeim ástæðum. Því má jafn vel búast við því að blaðamannafundinum seinki eitthvað, en samkvæmt áætlun á hann að hefjast klukkan 13.50 að íslenskum tíma.

Líkt og fyrr segir má fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér að neðan og þar fyrir neðan verður því sem þar fram kemur lýst í beinni textalýsingu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira
×