Lífið

Bein útsending: Spjallað við Siggu Kling á Facebook Live

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir október birtust í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun.

Sigga leggur áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Vísir fór af stað með skemmtilega nýjung fyrir fjórum vikum en þá var hægt að spjalla við Siggu Kling í beinni útsendingu á Facebook Live. Þetta verður að sjálfsögðu á dagskrá á ný í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar. 

Útsendingin hefst klukkan 14. Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara öllum spurningum og reyna þannig skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn. Spákonan biðlar til lesenda Vísis að koma með einlægar spurningar sem koma frá hjartanu. Ekki sé nóg að senda aðeins fæðingardaginn.

Útsendingin verður aðgengileg hér á Vísi en hún fer einnig fram í gegnum Facebook-síðu Vísis klukkan 14 og er hægt að koma spurningum á framfæri þar.

Uppfært kl. 14.30

Útsendingunni er lokið og þökkum við hinum fjölmörgu lesendum sem tóku þátt í henni með okkur. Í spilaranum hér ofan má horfa á upptöku af útsendingunni þar sem Sigga Kling svarar spurningum. Hér að neðan má sjá ummælin og útsendinguna sem var á Facebook-síðu Vísis.

Lesendur voru duglegir að senda inn spurningar.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×