Körfubolti

Snæfell fyrst til að vinna Helenu og Haukana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bryndís Guðmundsdóttir átti flottan leik.
Bryndís Guðmundsdóttir átti flottan leik. vísir/stefán
Íslandsmeistarar Snæfells urðu í kvöld fyrsta liðið til að vinna Hauka í Dominos-deild kvenna í körfubolta, en Íslandsmeistararnir höfðu betur eftir frábæran endasprett, 75-65.

Haukarnir unnu fyrstu sjö leiki sína á Íslandsmótinu, þar á meðal fyrstu viðureignina gegn Snæfelli á heimavelli, 66-62. Meistararnir komust með sigrinum á toppinn og hafa þar 16 stig, en Haukar eru með fjórtán stig og eiga leik til góða.

Leikurinn var frábær skemmtun og jafn og spennandi allan tímann. Snæfell var 35-31 yfir í hálfleik en fyrir fjórða leikhlutann var staðan jöfn, 51-51.

Þegar fimm mínútur voru eftir minnkaði Helena Sverrisdóttir muninn í eitt stig fyrir Hauka, 66-65, þegar hún skoraði körfu og fékk vítaskot sem hún nýtti.

Bryndís Guðmundsdóttir, sem spilaði frábærlega fyrir Snæfell í kvöld og sérstaklega í vörninni þar sem hún lét Helenu hafa fyrir hlutunum, svaraði með þriggja stiga körfu og munurinn fjögur stig, 69-65, þegar tvær mínútur voru eftir.

Haukum gekk afar erfiðlega að skora á síðustu mínútunum þar sem Haiden Palmer, bandarískur leikmaður Snæfells, tók af skarið í sóknarleiknum og sigldi með Hólmara fram úr og að sigrinum. Palmer skoraði 43 stig í leiknum og tók 14 fráköst, en Bryndís kom næst með 16 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar.

Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst Hauka í kvöld með 20 stig og sjö fráköst en Helena skoraði 19 stig, tók tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Virkilega sterkur sigur hjá Snæfelli sem var að spila án Gunnhildar Gunnarsdóttur, lykilmanns í meistaraliðinu.

Snæfell-Haukar 75-65 (15-16, 20-15, 16-20, 24-14)

Snæfell: Haiden Denise Palmer 43/14 fráköst/5 stoðsendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 16/6 fráköst, María Björnsdóttir 5, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5/10 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 3/6 fráköst, Andrea Björt Ólafsdóttir 2, Rebekka Rán Karlsdóttir 1, Sara Diljá Sigurðardóttir 0/4 fráköst.

Haukar: Pálína María Gunnlaugsdóttir 20/7 fráköst, Helena Sverrisdóttir 19/10 fráköst/7 stoðsendingar/6 stolnir, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 9/8 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 7, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 4/6 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 2, Eva Margrét Kristjánsdóttir 2, Auður Íris Ólafsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×