Fótbolti

Misura skoraði úr einu víti en klúðraði öðru í jafntefli á Selfossi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jósef Kristinn Jósefsson fiskaði seinni vítaspyrnuna.
Jósef Kristinn Jósefsson fiskaði seinni vítaspyrnuna. vísir/andri marinó
Selfoss og Grindavík skildu jöfn, 1-1, í fjórðu umferð 1. deildar karla í fótbolta á JÁVERK-vellinum á Selfossi í kvöld.

Heimamenn voru marki yfir í hálfleik, en Ivanirson Silva Oliveira frá Grænhöfðaeyjum skoraði fyrir Selfoss strax á annarri mínútu leiksins, 1-0.

Í seinni hálfleik fékk Grindavík vítaspyrnu á 63. mínútu þegar Alex Freyr Hilmarson var felldur í teignum.

Slóvenski framherjinn Tomislav Misura fór á punktinn og skoraði framhjá Vigni Jóhannessyni, 1-1.

Skömmu síðar fékk Grindavík aðra vítaspyrnu þegar bakvörðurinn Jósef Kristinn Jósefsson féll í teig Selfyssinga.

Misura fór aftur á punktinn en að þessu sinni skaut Slóveninn í slána. Kjörið tækifæri til að vinna leikinn rann þar út í sandinn.

Í uppbótartíma var Ivanirson Silva Oliveira svo rekinn af velli þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Lokatölur, 1-1.

Liðin eru áfram í 8. og 9. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjórar umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×