Viðskipti innlent

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður óbreytta stýrivexti

Atli Ísleifsson skrifar
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Vísir/Ernir
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,25 prósent.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri munu gera grein fyrir yfirlýsingu og ákvörðun peningastefnunefndar um vexti Seðlabankans á fréttamannafundi klukkan 10 sem sýndur verður hér að neðan.

Í tilkynningu peningamálanefndar frá í morgun sagði að sem fyrr sé gert ráð fyrir miklum hagvexti á þessu og næsta ári og bendi nýjustu vísbendingar til þess að vöxturinn sé jafnvel kröftugri en áður hafði verið gert ráð fyrir.

„Þrátt fyrir miklar launahækkanir og öran vöxt eftirspurnar hefur verðbólga haldist undir markmiði um tveggja og hálfs árs skeið. Viðskiptakjarabati, lítil alþjóðleg verðbólga, aðhaldssöm peningastefna og hækkun gengis krónunnar, þrátt fyrir töluverð gjaldeyriskaup Seðlabankans, hafa vegið á móti áhrifum launahækkana á verðbólgu.

Í september mældist verðbólga 1,8% og jókst hún töluvert frá fyrri mánuði. Að hluta endurspeglar það leiðréttingu á skekkju í verðbólgumælingum Hagstofu Íslands á tímabilinu mars til ágúst sl. Ofspá Seðlabankans á verðbólgu fram eftir ári var því í raun minni en áður var talið. Verðbólguhorfur hafa þó líklega lítið breyst frá þeirri spá sem bankinn birti í ágúst enda hefur gengi krónunnar hækkað enn frekar og verðbólguvæntingar eru áfram við verðbólgumarkmiðið.

Líkur á vaxandi spennu í þjóðarbúskapnum og óvissa í tengslum við losun fjármagnshafta kalla á varfærni við ákvörðun vaxta. Aðhaldsstig peningastefnunnar á komandi misserum mun því ráðast af efnahagsþróuninni og því hvernig tekst til við losun fjármagnshafta,“ segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.


Tengdar fréttir

Stýrivextir óbreyttir

Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,25 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×