Viðskipti erlent

Bein útsending: Samsung Galaxy S8 kynntur til leiks

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Samsung mun kynna nýjasta síma fyrirtækisin í New York í dag. Mikið veltur á að síminn, Samsung Galaxy S8, slái í gegn þar sem fíaskóið með S7 Note er flestum í fersku minni.

Kynningin hefst klukkan þrjú en upphitun Cnet, sem sjá má hér að neðan, hefst hálftíma fyrr.

Mikið af upplýsingum hefur lekið um símana og ef eitthvað er að marka þá leka, þykir ekki líklegt að kynning Samsung muni koma mikið á óvart.

Þó er ekki ólíklegt að Samsung muni kynna eitthvað meira en síma í dag.

Útsending Samsung á Facebook.
Útsending CNet

Tengdar fréttir

Hvernig snjallsíma á ég að kaupa mér?

Fréttablaðið rýndi í fjölda snjallsíma til þess að hjálpa til við valið. Litið er til þátta eins og verðs, skjástærðar og framleiðanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×