Innlent

Bein útsending: Opinn fundur um varðveislu sönnunargagna í sakamálum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund um varðveislu sönnunargagna í sakamálum.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund um varðveislu sönnunargagna í sakamálum.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund um varðveislu sönnunargagna í sakamálum í dag, miðvikudaginn 17. janúar, frá klukkan 15 til 17. Gestir fundarins eru Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.  

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis, í sjónvarpi og í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×