Viðskipti innlent

Bein útsending: Nexpo verðlaunin 2015

Tinni Sveinsson skrifar
Nexpo verðlaunin eru veitt í átta flokkum.
Nexpo verðlaunin eru veitt í átta flokkum.
Nexpo verðlaunahátíðin er haldin í fimmta skipti í kvöld. Hægt er að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu hér á Vísi.

Líkt og fyrri ár verður vef- og markaðsfólk í fyrirrúmi á Nexpo, en því til viðbótar verður lögð sérstök áhersla á nýsköpun á Íslandi á verðlaunahátíðinni í ár.

Verðlaun verða veitt í átta flokkum, þar af tveimur nýjum flokkum: sprotafyrirtæki ársins verður valið og besti markaðsárangur sprotafyrirtækis sömuleiðis.

Aðrir verðlaunaflokkar eru vefhetjan, app ársins, vefur, herferð og stafrænt markaðsstarf ársins. Þá verður besta óhefðbundna auglýsing ársins verðlaunuð.

Tæknivefurinn Simon tók nú í ár við hátíðinni af fyrirtækinu Silent, sem vann þau í samstarfi við Vísi síðustu ár. Simon annast nú framkvæmd hátíðarinnar í samstarfi við Kjarnann og Klak Innovit.

Tekið var á móti tilnefningum almennings á Kjarnanum en dómnefnd fór síðan yfir valið. Hægt er að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu í spilaranum neðst í fréttinni. Verðlaunaafhendingin hefst klukkan 18.45 og stendur til klukkan 20.40.



Tilnefningar til Nexpo verðlaunanna 2015 

Vefhetjan

App

Vefur

  • Blaer.is – Blær
  • Arsskyrsla2013.landsvirkjun.is – Landsvirkjun, Jónsson & Le’Macks og Skapalón
  • Netbanki Landsbankans – Landsbankinn
  • On.is – Orka náttúrunnar, Kosmos & Kaos og Kapall
  • Dominos.is – Dominos og Skapalón
Herferð

  • Egils Grape – Náttúrulega biturt – Ölgerðin og Pipar/TBWA meira hér
  • Örugg borg – UN Women á Íslandi, Síminn og Tjarnargatan meira hér
  • Velkomin heim um jólin – Icelandair og Íslenska meira hér
  • Hringdu – Ótakmarkað niðurhal – Hringdu og Playmo meira hér og hér
  • Nova Snapchat – Nova og Brandenburg meira hér
Stafrænt markaðsstarf

Óhefðbundna auglýsingin

  • Örugg borg – UN Women á Íslandi, Síminn og Tjarnargatan meira hér
  • Ekkitapa.is – KSÍ og Tjarnargatan meira hér
  • Hekla Aurora – Icelandair og Íslenska meira hér
  • Zombís grafreitur – Kjörís og Brandenburg meira hér
  • Samsung – Sumt breytist – Tæknivörur og Tjarnargatan meira hér
Sprotafyrirtæki

Besti markaðsárangur sprotafyrirtækis:

Hér fyrir neðan má fylgjast með umræðunni á Twitter undir merkinu #nexpo.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×