Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Félagsmálaráðherra hefur fengið ábendingar víðsvegar að á landinu um að leigufélög hafi hækkað leiguverð óeðlilega mikið við endurnýjun samninga. Hann hefur boðað forsvarsmenn leigufélaga á fundi með sér og ákveður eftir þá hvort þörf sé á að ríkistjórnin bregðist sérstaklega við. Rætt verður við hann í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar fjöllum við líka um aukna hættu á gróðureldum hér á landi og kynnum okkur nýsköpun í Fjallabyggð.

Strax að loknum fréttum mætast svo oddvitar framboða í Hafnarfirði í kappræðum í beinni útsendingu á Stöð 2 og í opinni dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×