Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Vændi hefur stóraukist hér á landi síðustu mánuði að sögn lögreglunnar og Ísland er annars flokks í baráttunni gegn mansali, samkvæmt nýrri skýrslu. Sextán mansalsmál voru rannsökuð hér á landi í fyrra, en ekki hefur verið saksótt eða dæmt í slíkum málum í sex ár.

Nánar verður fjallað um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö. Þar kynnum við okkur líka nýja íslenska rannsókn en niðurstöður hennar benda til þess að íslenskar elítur séu að styrkjast og að fulltrúar þeirra búi einkum í Garðabæ og á Seltjarnarnesi.

Við fjöllum líka um húsnæðisskort í Reykjanesbæ og skoðum áhrif norsku unglingaþáttanna SKAM á norskuáhuga Íslendinga. Þetta og margt fleira á slaginu 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×