Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Ítarlega verður fjallað um þingflokksfund Framsóknarflokksins í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. Einnig verður sagt frá því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort andlát konu aðfaranótt fimmtudags tengist neyslu læknadóps.

Við segjum einnig frá niðurstöðu hæstaréttar sem dæmdi leigusala til að greiða leigutökum bætur vegna myglusvepps. Rætt verður við lögmann fólksins sem segir um fordæmisgefandi dóm að ræða.  Þá hittum við fimm ára sýrlenskan dreng sem hefur á undanförnum dögum sungið sig inn í hjarta íslensku þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×