Erlent

Sjáðu fyrstu kappræður Trump og Clinton í heild sinni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
*Uppfært 02.40* Fyrstu kappræðum forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum er lokið. Hillary Clinton, forsetaefni Demókrata og Donald Trump, forsetaefni Repúblikana tókust á um stefnu sína í efnahagsmálum, löggæslumálum, alþjóðamálum og ýmsu öðru í hressilegum kappræðum sem fram fóru í Hofstra-háskólanum í New York í nótt.

Voru þetta fyrstu kappræðurnar af þremur sem áætlaðar eru. Næstu kappræður eru á dagskrá 9. október en 4. október takast varaforsetaefnin Tim Kaine og Mike Pence á. 

Sjá má kappræðurnar í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan auk þess fletta má í gegnum umræðuna á Twitter þar fyrir neðan. Kappræðurnar hefjast þegar um ein klukkustund og 45 mínútur eru eftir af útsendingunni.

Umræðan á Twitter

Fyrstu kappræðurnar milli forsetaframbjóðendanna Hillary Clinton og Donald Trump fara fram í Bandaríkjunum í nótt. Spennan er gríðarleg enda hefur bilið á milli frambjóðendanna tveggja minnkað gríðarlega.

Herlegheitin hefjast klukkan eitt í nótt og búist er við að um 100 milljónir Bandaríkjamanna muni horfa á fyrstu sjónvarpskappræðurnar af þremur, sem fram fara í Hofstra háskóla í New York. Blaðamaður NBC, Lester Holt mun stýra umræðunum en athygli vekur að hann er skráður Repúblikani þrátt fyrir að Trump hafi kvartað yfir því að Holt væri Demókrati.

90 mínútur. Engin auglýsingahlé.

Fyrirkomulagið er einfalt. Kappræðurnar standa yfir í níutíu mínútur en engin auglýsingahlé verða á útsendingunni. Kappræðunum er skipt í sex hluta. Fyrstu tveir munu fjalla um hvaða stefnu Bandaríkin muni taka, næstu tvær munu fjalla um efnahagsmál og síðustu tveir um öryggismál og utanríkisstefnu.

Reiknað er með fimmtán mínútum á hvern hluta sem hefst á spurningu sem frambjóðendur fá tvær mínútur til þess að svara. Því næst verða tíu mínútur nýttar í umræðu. Hillary Clinton mun fá fyrstu spurninguna en hún sigraði í hlutkesti þess efnis. Í næsta hluta mun Trump fá fyrstu spurninguna og svo koll af koli.

Trump hefur sótt gríðarlega á Clinton að undanförnu sem hefur átt í vök að verjast frá því að hún þurfti frá að hverfa frá minningarathöfn um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna í New York 11. september 2001. Ekki er langt síðan hún var með afar örugga forystu en í byrjun ágúst voru um 90 prósent líkur á sigri Clinton samkvæmt sérstöku tölfræðilíkani FiveThirtyEight.

Sama líkan sýnir nú að sigurlíkur Clinton eru nú taldar um 55 prósent gegn 45 prósentum Trump. Samkvæmt samantektarkönnun RealClearPolitics er munurinn á milli Clinton og Trump rétt um tvö prósent í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum. Mikil spenna ríkir því fyrir kappræðum næturinnar en til þess að koma sér í gírinn er við hæfi að skoða upphitun bandarísku vefsíðunnar Vox.com hér að neðan þar sem farið er yfir helstu lykilþætti. 


Tengdar fréttir

Stefnir í einn stærsta sjónvarpsviðburð sögunnar

Fyrstu kappræðurnar milli forsetaframbjóðendanna Hillary Clinton og Donald Trump fara fram í Bandaríkjunum í kvöld og stefna í að verða einn stærsti sjónvarpsviðburður sögunnar. Mikil spenna ríkir fyrir þeim enda er mjótt á munum milli frambjóðendanna og líklegt er að frammistaða þeirra í sjónvarpi muni ráða úrslitum í kosningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×