Innlent

Bein útsending: Forsetaframbjóðendur sitja fyrir svörum á opnum fundi í HR

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Þetta eru þau níu sem berjast um lyklavöldin að Bessastöðum.
Þetta eru þau níu sem berjast um lyklavöldin að Bessastöðum. vísir/
Frambjóðendur til forseta Íslands munu sitja fyrir svörum á opnum fundi Lögréttu, félagi laganema við Háskólann í Reykjavík, klukkan tólf í dag. Efni fundarins er stjórnarskrá Íslands.

Hver frambjóðandi fær fimm mínútur til að kynna sig og svara spurningum um stjórnarskrána. Eftir erindi frambjóðenda verður tekið við spurningum á sal. Fundurinn er öllum opinn frá klukkan 12 til 13 í stofu M105 í Háskólanum í Reykjavík.

Alls eru níu manns í framboði; Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Jökulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir og Sturla Jónsson. Guðrún Margrét verður ekki til svara á fundinum í dag.

Uppfært

Fundinum er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×