Innlent

Bein útsending: Bjarni mætir til fundar við Guðna á Bessastöðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Segja má að um fyrsta stóra verkefni Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands sé að ræða.
Segja má að um fyrsta stóra verkefni Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands sé að ræða. Vísir/GVA
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið boðaður til fundar við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Fastlega er búist við því að Guðni veiti Bjarna umboð til stjórnarmyndunar á fundinum.

Formenn allra flokka sem fengu fólk kjörið á Alþingi funduðu með Guðna á mánudaginn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ræddi Guðni við þrjá þeirra í gær. Þá Benedikt Jóhannesson, formann Viðreisnar, Bjarna Benendiktsson og Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, í gær. 

Á tíunda tímanum í morgun barst svo tilkynning frá embætti forseta Íslands þess efnis að Bjarni hefði verið boðaður til Bessastaða. 

Vísir verður í beinni útsendingu frá Bessastöðum en Bjarni er væntanlegur á fundinn rétt fyrir klukkan 11. Þá munu þeir Guðni ræða saman undir fjögur augu og í framhaldinu ræða við fjölmiðla. 

Uppfært klukkan 11.

Bjarni er mættur á fund Guðna og er þess nú beðið að þeir ræði við fjölmiðla. Bein útsending er í spilaranum að ofan.

Uppfært klukkan 12.

Upptökur úr útsendingunni eru nú aðgengilegar hér fyrir neðan.

Bjarni Benediktsson mætti á Bessastaði klukkan 11 og ræddi við fjölmiðla á tröppum Bessastaða áður en hann skrifaði í gestabókina og fór inn í bókastofu til fundar með forseta.

Forseti Íslands ræddi við fjölmiðla eftir fundinn. Þar las hann upp yfirlýsingu varðandi stjórnarmyndunarumboðið auk þess að svara spurningum um nýja ákvörðun kjararáðs um launahækkanir.

Bjarni Benediktsson kom þvínæst og ræddi við fjölmiðla. Þar sagðist hann ætla að ræða við formenn allra þingflokka um myndun nýrrar stjórnar. Bjarni svaraði einnig spurningum um ákvörðun kjararáðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×