Sport

Arnar Helgi hafnaði í fimmta sæti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnar Helgi Lárusson kemur í mark í Swansea í dag.
Arnar Helgi Lárusson kemur í mark í Swansea í dag. mynd/ífsport.is
Arnar Helgi Lárusson hafnaði í fimmta og síðasta sæti í 100 metra hjólastólaspretti á EM fatlaðra í Swansea í dag.

Arnar Helgi kom í mark á 18,86 sekúndum, en hefði þurft að gera betur en 16,53 sekúndur til að komast á pall.

Bretinn Mickey Bushell varð Evrópumeistari, Frakkinn PierreFairbank annar og samlandi hans NicolasBrignone þriðji.

Arnar hefur ekki lokið keppni á mótinu því hann keppir í 200 metra spretti á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×