Viðskipti innlent

Bein útsending: Allt um fjármál NBA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, heldur fróðlegan fund um fjármálahlið NBA deildarinnar, sem hefst annað kvöld. Þeir Kjartan Atli Kjartansson, körfuboltasérfræðingur á Stöð 2 Sport, og Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB, ræða þar málin og lofa skemmtilegum fundi.

Meðal þess sem rætt verður um er hin sérkennilega fjárhagslega samtrygging félaganna í deildinni, kjaramál leikmanna og mikilvægi þess að úrslitaviðureignin fari í sem flesta leiki.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í umræðu um fundinn geta það með Twitter auðkenninu #VIBfundur

Bein útsending frá fundinum verður í spilaranum að neðan en fundurinn, sem fram fer í útibúi Íslandsbanka á Granda, hefst klukkan 17.


 

NBA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×