Innlent

Bein útsending: Áfengisfrumvarpið áfram rætt á Alþingi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frumvarpið felur í sér að einokun ÁTVR á sölu áfengis verði afnumin.
Frumvarpið felur í sér að einokun ÁTVR á sölu áfengis verði afnumin. Vísir/GVA
Fyrstu umræðu um áfengisfrumvarpið svokallaða verður framhaldið á Alþingi í dag þegar umræðu um störf þingsins lýkur en þingfundur hófst klukkan 13:30.

Umræðan hófst á fimmtudaginn í síðustu viku og stóð í sex klukkutíma en flutningsmenn frumvarpsins eru þau Teitur Björn Einarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Hildur Sverrisdóttir úr Sjálfstæðisflokki, Pawel Bartoszek úr Viðreisn, Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helgadóttir og Viktor Orri Valgarðsson úr Pírötum og Nichole Leigh Mosty úr Bjartri framtíð.

Fylgjast má með umræðunni á þingi í dag í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×