Lífið

Timberlake sló í gegn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Justin Timberlake í Kórnum í kvöld.
Justin Timberlake í Kórnum í kvöld. Vísir/Andri Marinó
„Ég elska ykkur svo mikið. Sjáumst síðar,“ sagði Justin Timberlake í lok tónleika hans í Kórnum í Kópavogi í kvöld. Timberlake spilaði í rúman einn og hálfan tíma við frábærar undirtektir tónleikagesta. Þá voru tónleikarnir sýndir beint á vef Yahoo. GusGus hitaði upp fyrir Timberlake ásamt plötusnúðum DJ Freestyle Steve sem gerði allt vitlaust að sögn blaðamanns Vísis í Kórnum.

Rétt fyrir klukkan 21 voru ljósin slökkt og slagarinn My Way með Frank Sinatra hljómaði. Óhætt er að segja að allt hafi ætlað um koll að keyra og sungu tónleikagestir hástöfum með. Í kjölfarið steig nýjasti Íslandsvinurinn á svið við gríðarlegar undirtektir.

Endursýning tónleikanna hófst klukkan 22:45. Hér má horfa á tónleikana.

Lagalisti frá síðustu tónleikum JT í París á fimmtudagskvöldið.
Timberlake hóf leik á laginu Pusher Love Girl en fjölmargir hljóðfæraleikarar og bakraddasöngvarar eru honum til halds og trausts á sviðinu. Að laginu loknu ærðust tónleikagestir og gaf Timberlake sér nægan tíma til þess að virða salinn fyrir sér með lúmskt glott. Í kjölfarið hneigði hann sig.

„Er það svona sem okkur líður á Íslandi í kvöld?“ voru fyrstu orð Timberlake til tónleikagesta sem tóku vel í spurningu bandaríska söngvarans. „Komuð þið til að skemmta ykkur í kvöld, eða hvað?“ bætti hann svo við. Í kjölfarið fylgdu svo lögin Gimme what I don't know og slagarinn Rock Your Body.

„Ég verð að segja ykkur að Ísland er einn fallegasti staður í heimi. Og hér drekkur fólk, ójá,“ sagði Timberlake síðar á milli laga. Þá hvetur hann tónleikagesti til þess að hrista á sér rassinn auk þess að notast við ljósin á símum sínum og kveikjara.

Tónleikagestir á leiðinni í Kórinn í kvöld.Vísir/Andri Marinó
„Ef einhver hefði sagt mér þegar ég var átta ára að læra gítargripin að einn daginn yrði ég á Íslandi að spila fyrir ykkur...,“ sagði Justin undir lok tónleikanna.

„Maður semur lögin í litlu herbergi og veit aldrei hver mun hlusta á þau. Frá hjartarótum þakka ég ykkur. Ég elska ykkur af öllu hjarta.“

Timberlake lauk tónleikunum á slagara sínum Mirrors þar sem undirtektir tónleikagesta voru afar miklar. Bandaríkjamaðurinn gekk svo um sviðið, veifaði til Íslendinga og þakkaði kærlega fyrir sig.

„Ég elska ykkur svo mikið. Sjáumst síðar,“ sagði Timberlake og myndaði hjarta með höndum sínum.

Endursýning á tónleikunum hófst hér fyrir skömmu.

Stemningin í Kórnum í kvöld var frábær að sögn blaðamanns Vísis á svæðinu.Vísir/Andri Marinó

Tengdar fréttir

Allt að verða klárt fyrir Timberlake

Öllu hefur nú verið umturnað í Kórnum fyrir tónleika Justins Timberlake. Ekki hefur fengist staðfest hvort eiginkona kappans kemur með honum til landsins. Tónleikarnir sem sýndir verða beint á netinu marka tímamót því eftir þá fer Justin og hans fólk í má






Fleiri fréttir

Sjá meira


×