Innlent

Bein tengsl á milli aukinnar áfengisneyslu og lýðheilsuvanda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir, Óskar Vídalín Kristjánsson, Lilja Pétursdóttir, Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, Hildur Rafnsdóttir og Þórhildur Þórarinsdóttir.
Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir, Óskar Vídalín Kristjánsson, Lilja Pétursdóttir, Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, Hildur Rafnsdóttir og Þórhildur Þórarinsdóttir. mynd/aðsend
Hópur nemenda við Háskólann á Bifröst rannsakaði í misserisverkefni hugsanleg samfélagsleg áhrif verði frumvarp um frjálsa sölu áfengis samþykkt á Alþingi. Niðurstöður leiddu í ljós að einkavæðingu áfengissölu fylgir mikil aukning á verslunum sem sjá um sölu áfengis en þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Niðurstaða verkefnisins er sú að aðgengi að áfengi verði meira eftir því sem sölustaðir verða fleiri og samkeppni færist á markað. Í langflestum tilfellum leiði það til aukinnar áfengisneyslu á höfðatölu. Yfirleitt sé bann á áfengisauglýsingum afnumið þegar salan sé einkavædd. Höfundar verkefnisins benda á að flestar rannsóknir segja að bein tengsl séu á milli aukinnar áfengisneyslu og lýðheilsuvanda og félagslegs vanda.

Markmið verkefnisins var að kanna hugsanleg samfélagsleg áhrif verði frumvarp um frjálsa sölu áfengis samþykkt á Alþingi. Höfundar leituðust við að rannsaka þau áhrif á hlutlausan hátt og fengu aðstoð sérfróðra manna er vel þekkja til þeirra málefna sem frumvarpið snertir.

Ennfremur sé Ísland aðildarríki að Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO). Það er mat höfunda að áfengislagafrumvarpið sé í mótsögn við þá áætlun sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi í áfengis- og vímuvörnum, en stofnunin leggur til að draga úr lýðheilsu- og félagslegum vanda með takmörkun á aðgengi og þannig draga úr skaðlegum áhrifum áfengis.

„Með því að samþykkja frumvarpið væri verið að ganga gegn þessari stefnu sem sett hefur verið af stjórnvöldum,“ segir í tilkynningu frá Bifröst.

Verkefnið þótti vera framúrskarandi rannsókn að mati 2ja prófdómara og hlaut verðlaun sem besta misserisverkefnið. Hópinn skipuðu Sigurbjörg R. Hjálmarsdóttir, Óskar Vídalín Kristjánsson, Lilja Pétursdóttir, Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, Hildur Rafnsdóttir og Þórhildur Þórarinsdóttir.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði fram frumvarp um breytingar á áfengislöggjöf í september sem felur í sér að leyfilegt verður að selja áfengi í matvöruverslunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×