Íslenski boltinn

Meistararnir fara í Krikann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjarnan hefur unnið bikarkeppnina undanfarin tvö ár.
Stjarnan hefur unnið bikarkeppnina undanfarin tvö ár. vísir/andri marinó
Dregið var í 16-liða úrslit Borgunarbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu.

Öll tíu liðin úr Pepsi-deildinni voru í pottinum ásamt sex liðum úr 1. deild.

Ríkjandi bikarmeistarar Stjörnunnar drógust gegn FH en stórleikur 16-liða úrslitanna er viðureign Selfoss og Vals. Þá mætast Pepsi-deildarliðin KR og ÍBV.

Leikirnir fara fram 11. og 12. júní næstkomandi.

Þessi lið mætast í 16-liða úrslitum:

FH - Stjarnan

HK/Víkingur - Þróttur

KR - ÍBV

Haukar - ÍA

Selfoss - Valur

Keflavík - Breiðablik

Fylkir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir

Þór/KA - Grindavík

Bein lýsing:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×