Erlent

Beiðni um áfrýjun í máli Steven Avery fyrir dómstóla í lok ágúst

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Mál Steven Avery hefur vakið heimsathygli eftir sjónvarpsþættina Making a Murderer.
Mál Steven Avery hefur vakið heimsathygli eftir sjónvarpsþættina Making a Murderer. Vísir/Netflix
Í lok ágúst fær nýr lögfræðingur Steven Avery áheyrn dómstóla í Wisconsin í Bandaríkjunum þar sem formlega verður lögð fram tillaga um að mál hans verði áfrýjað. Avery varð heimsfrægur eftir að Netflix gerði heimildarþáttaröðina Making a Murderer um mál hans og frænda hans Brendan Dassey.

Margir sem hafa séð þáttaröðina eru sannfærðir um að Avery og frændi hans hafi verið hafðir af rangri sök. Avery var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á ljósmyndaranum Teresa Halbach og frændi hans líka sem þá var aðeins 17 ára gamall. Nýverið var dómurinn yfir Dassey, sem er orðinn 26 ára í dag, ógildur sem þýðir að hann gæti losnað úr fangelsi innan skamms áfrýi saksóknari ekki úrskurðinum.

Steven Avery og Brendan Dassey.Vísir/Getty
Ný sönnunargögn og vitni

Kathleen Zellner, nýr lögfræðingur Avery, segist hafa undir höndum ný sönnunargögn sem krefjist þess að framkvæmt verði nýtt DNA próf á einu af þeim mörgu sönnunargögnum sem notað var gegn Avery í réttarhöldum hans. Hún telur að með því geti hún sannað að sönnunargögnum hafi verið komið fyrir á heimili Avery til þess að láta líta út fyrir að hann væri sekur. Með því vonast hún til þess að sýna fram á hugsanlega sekt annars aðila.

„Það er ekkert víst að þetta gangi en ég trúi því að ef við getum sýnt fram á að eitt sönnunargagnanna hafi verið falsað þá sé það nóg til þess að ógilda dóminn,“ sagði Zellner. „Það eru sönnunargögn nú þegar til staðar sem benda á aðra staðsetningu og á annan hugsanlegan morðingja. Við erum bæði með vitni sem við teljum trúverðugt og ný sönnunargögn.“

Zellner hefur áður fengið 17 dóma ógilda í sakamálum sem hún hefur tekið að sér í málum þar sem hún hefur trúað því að viðkomandi hafi verið hafður af rangri sök. Steven Avery er sagður bjartsýnn á að hann komi einhvern tímann með að losna úr fangelsi.

Zellner fer fyrir dómsstóla þann 29. ágúst næstkomandi með nýju gögnin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×