Menning

Beðið eftir umsóknum í bréfapósti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tinna Gunnlaugsdóttir.
Tinna Gunnlaugsdóttir. Vísir/Valli
Frestur til þess að sækja um starf þjóðleikhússtjóra rann út í gær. Starfið var auglýst til umsóknar þann 1. júní síðastliðinn.

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, sérfræðingur í Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, sagði í samtali við Vísi í dag að listi yfir nöfn umsækjenda yrði gerður opinber síðar í vikunni. Beðið yrði eftir því að mögulegar umsóknir, sem póstlagðar hefðu verið í gær, myndu berast. Hún vildi ekki gefa upp fjölda umsækjenda en staðfesti að umsóknir hefðu borist.

Tinna Gunnlaugsdóttir hefur gegnt stöðu leikhússtjóra frá árinu 2004 eða í tíu ár. Skipað er í stöðuna til fimm ára í senn. Grunnlaun leikhússtjóra eru 659.654 krónur. Ráðið verður í stöðuna 1. janúar 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×