Innlent

Becromal lofar úrbótum vegna sýrustigs í frárennsli

Verksmiðjan Becromal framleiðir aflþynnur.
Verksmiðjan Becromal framleiðir aflþynnur.
Stjórn Becromal Iceland ehf segir í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér að unnið verði með fagaðilum og hagsmunaaðilum að úrbótum þeirra vandkvæða sem starfsemin hefur átt við að etja.

Umhverfisstofnun barst ábending frá Kastljósi, sem fjallaði um málið í gærkvöldi, um að starfsemi aflþynnuverksmiðjunnar í Krossanesi væri ekki í samræmi við ákvæði starfsleyfis verksmiðjunnar, þar sem sýrustig í frárennsli væri allt of hátt.

Becromal barst í dag tilkynningu frá Umhverfisstofnun um að úrbætur beri að gera á þremur atriðum í starfsemi aflþynnuverksmiðjunnar í Krossanesi til að uppfylla starfsleyfi fyrirtækisins.

Stjórn Becromal Iceland ehf. hefur samþykkt að bregðast nú þegar við með eftirfarandi aðgerðum við athugasemdum Umhverfisstofnunar.

1. Samkvæmt útgefnu starfsleyfi Becromal skal sólarhringsmeðaltal sýrustigs (pH-gildi) í afrennsli verksmiðjunnar vera 6,5-9,5. Sveiflur hafa reynst vera í pH-gildi afrennslisins þannig að pH-mæligildin hafa slegið bæði undir þessi mörk og yfir þau. Með breytingum á búnaði og breyttu vinnulagi verður tryggt að afrennsli verksmiðjunnar verði jafnað og ætíð innan þessara marka. Þessi vinna er nú þegar hafin.

Rétt er að taka fram að umrætt afrennsli er vegna þrifa tækjabúnaðar en ekki vegna framleiðslunnar sjálfrar. Afrennsli verksmiðjunnar er tengt fráveitukerfi Akureyrarbæjar og fer því ekki beint í sjó.

2. Stjórn Becromal Iceland ehf. mun hafa daglegt eftirlit með framvindu úrbóta þeirra athugasemda sem bárust frá Umhverfisstofnun.

3. Fram fari úttekt á öllum öryggis- og umhverfisþáttum aflþynnuverksmiðju fyrirtækisins í Krossanesi við Akureyri. Að þessu verkefni komi til þess bærir rannsóknar- og fagaðilar. Úttektin innifeli meðal annars í sér sýnatöku í sjó í nágrenni verksmiðjunnar, úttekt á verkferlum og tækjabúnaði í verksmiðjunni og öðrum þeim þáttum sem tryggi að starfsemi verksmiðjunnar sé á hverjum tíma í samræmi við útgefið starfsleyfi.


Tengdar fréttir

Starfsmenn Becromal Iceland samþykkja verkfall

Starfsmenn Becromal Iceland, álþynnuverksmiðjunnar á Akureyri, samþykktu í gær verkfall með yfirgnæfandi meirihluta. 52 greiddu atkvæði, 51 sagði já en einn greiddi atkvæði gegn verkfallinu. 98 prósent starfsmanna greiddu því með verkfallinu.

Þurfa að skila inn áætlun um úrbætur fyrir 4. apríl vegna mengunar

Umhverfistofnun hefur sent Becromal Iceland, álþynnuverksmiðjuna á Akureyri, áform um áminningu og gerð er krafa um að fyrirtæki skili inn áætlun um hvenær það áformi að ljúka úrbótum eigi síðar en 4. apríl. Frestur fyrirtækis til að skila inn athugasemdum er lögbundinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×