Lífið

Beckham gaf heimilislausum manni borgara á Búllunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þvílíkur maður sem David Beckham er.
Þvílíkur maður sem David Beckham er. vísir/daily mail
David Beckham er án efa einn allra frægasti og vinsælasti íþróttamaður heims í dag. Hann hefur reyndar lagt knattspyrnuskóna á hilluna en hefur í áraraðir verið óskabarn Breta.

Uppáhalds hamborgarastaður Beckham er Tommi´s Burger Joint eða Hamborgarabúllan í London og fer kappinn oft þangað og fær sér alíslenskan hamborgara.

Á dögunum fór Beckham ásamt syni sínum Romeo og dóttur sinni Harper á staðinn og fengu þau sér að borða. Hann kom auga á heimilislausan mann fyrir utan staðinn og ákvað að gefa honum hamborgara.

Sá varð algjörlega orðlaus og þakkaði pent fyrir sig en breski miðillinn Daily Mail greinir frá þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×