Fótbolti

Beckenbauer viðurkennir mistök

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Franz Beckenbauer og Sepp Blatter.
Franz Beckenbauer og Sepp Blatter. Vísir/Getty
Franz Beckenbauer, sem bæði varð heimsmeistari með þýska landsliðinu sem fyrirliði og þjálfari, hefur viðurkennt mistök nefndar sem hann fór fyrir þegar Þjóðverjar sóttust efir því að fá að halda heimsmeistaramótið í fótbolta 2006.

Beckenbauer viðurkennir mistökin en  neitar því  að Þjóðverjar hafi keypt atkvæði eins og fréttir bárust af á dögunum. Beckenbauer er einn háttsettum mönnum innan FIFA sem hefur verið til rannsóknar vegna spillingarmála.

Beckenbauer var yfirmaður skipulagsnefndar heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi sumarið 2006 en Þjóðverjar höfðu betur í baráttu við Suður-Afríku þegar FIFA kaus um hvar keppnin ætti að fara fram. Sú kosning fór fram árið 2000 eða sex árum fyrir keppnina.

Fréttatímaritið Der Spiegel sló því upp hjá sér að 6,7 milljónir evra hafi farið í það að kaupa atkvæði í kosningunni sem fór fram hjá Framkvæmdanefnd FIFA en þýska knattspyrnusambandið hefur neitað þessum ásökunum.

Beckenbauer kom strax fram og neitaði því að hafa staðið fyrir því að hafa kaupa atkvæði fyrir kosninguna. Þýska knattspyrnusamband réð lögfræðifyrirtæki til að kanna málið betur og var Beckenbauer tekin í yfirheyrslu. Þar tók hann ábyrgð á þessum mistökum.

„Til að fá nauðsynlega styrki frá FIFA [til að halda HM 2006] þurftu þeir hinir sömu að fylgja eftir tillögu frá fjárhagsnefnd FIFA en með augum dagsins í dag þá átti sú tillaga aldrei að vera samþykkt," sagði Franz Beckenbauer í yfirlýsingu sem BBC sagði frá.

„Ég, sem forseti umræddrar skipulagsnefndar, tek ábyrgðina á þessum mistökum," bætti Franz Beckenbauer við.

Franz Beckenbauer sem hélt upp á sjötugsafmælið sitt á dögunum fékk tvisvar sinnum Gullboltann sem besti knattspyrnumaður Evrópu (1972 og 1976) en hann vann HM sem leikmaður (og fyrirliði) 1974 og sem þjálfari 1990.


Tengdar fréttir

Platini gefst ekki upp

Michel Platini ætlar í forsetaframboð hjá FIFA þó svo hann sé grunaður um spillingu.

Beckenbauer ósáttur við leikmannaveltuna hjá Bayern

Franz Beckenbauer, heiðursforseti Bayern München, segir að liðið hafi gert mistök á leikmannamarkaðnum í janúar. Hann er ekki sáttur með hvernig þýska félagið hefur hagað sér á leikmannamarkaðnum undanfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×