Fótbolti

Bayern skoraði þrjú á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vidal fagnar marki sínu.
Vidal fagnar marki sínu. vísir/getty
Bayern Munchen var ekki í neinum vandræðum með Schalke 04 í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en lokatölur urðu 3-0 sigur Bæjara.

Staðan var þó markalaus í hálfleik, en pólski framherjinn Robert Lewandowski var heitur í þeim síðari.

Hann skoraði tvö mörk á ellefu mínútna kafla, eitt á 54. mínútu og eitt á 65. mínútu. Arturo Vidal gulltryggði svo sigurinn á 74. mínútu.

Bayern er því með tíu stiga forskot á Dortmund á toppi deildarinnar, en Dortmund á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×