Fótbolti

Bayern skoraði sjö í Rómarborg - sjáðu öll mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arjen er laus úr Laugardalsvallargæslunni og er kominn með tvö mörk.
Arjen er laus úr Laugardalsvallargæslunni og er kominn með tvö mörk. Vísir/Getty
Bayern München er á svaka siglingu í Meistaradeildinni og þýska liðið fór illa með ítalska liðið AS Roma í kvöld. Bayern skoraði fimm mörk í fyrri hálfleiknum en leikurinn fer fram í Rómarborg.

Arjen Robben skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum en hin mörkin skoruðu þeir Mario Götze, Robert Lewandowski og Thomas Müller úr vítaspyrnu. Franck Ribery og Xherdan Shaqiri bættu við í seinni hálfleik.

Liðsmenn Roma áttu engin svör við stórleik Bayern á fyrstu 45 mínútum leiksins en það er ekki oft sem að maður sér svona tölur í Meistaradeildinni. Gervinho skoraði eina mark Roma.

Það er hægt að sjá öll þessi fimm mörk Bayern-liðsins hér fyrir neðan.

1-0 fyrir Bayern 2-0 fyrir Bayern 3-0 fyrir Bayern 4-0 fyrir Bayern 5-0 fyrir Bayern 5-1 Roma skorar 6-1 fyrir Bayern 7-1 fyrir Bayern



Fleiri fréttir

Sjá meira


×