Fótbolti

Bayern með fullt hús stiga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewandowski skoraði og lagði upp í kvöld.
Lewandowski skoraði og lagði upp í kvöld. vísir/getty
Bayern München er með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni og markatöluna 8-0 eftir 0-2 sigur á Schalke 04 í kvöld.

Leikurinn var frábær skemmtun þótt mörkin létu bíða eftir sér. Heimamenn í Schalke voru síst lakari aðilinn en í seinni hálfleik hertu gestirnir smám saman tökin. Skiptingar Carlos Ancelotti gengu vel upp og leikmenn Bayern juku pressuna.

Robert Lewandowski skaut yfir fyrir opnu marki á 74. mínútu en honum urðu ekki á nein mistök sjö mínútum seinna þegar hann skoraði eftir sendingu frá Javi Martínez.

Varamaðurinn Joshua Kimmich gulltryggði svo sigur Bayern þegar hann skoraði annað mark liðsins í uppbótartíma eftir sendingu frá Lewandowski.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×