Fótbolti

Bayern komið með sjö stiga forskot

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það tók leikmenn Bayern 90 mínútur að brjóta vörn Ingolstadt á bak aftur.
Það tók leikmenn Bayern 90 mínútur að brjóta vörn Ingolstadt á bak aftur. vísir/getty
Bayern München er komið með sjö stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.

Bayern vann 0-2 sigur á Ingolstadt á sama tíma og RB Leipzig tapaði 0-3 fyrir Hamburg á heimavelli.

Sigur Bayern var tæpur en liðið braut ekki ísinn fyrr en á lokamínútu leiksins. Þar var að verki Arturo Vidal. Mínútu síðar gulltrygði Arjen Robben sigur meistarana.

Borussia Dortmund tapaði óvænt fyrir botnliði Darmstadt á útivelli. Dortmund er í 4. sæti deildarinnar.

Aron Jóhannsson lék síðustu 10 mínúturnar þegar Werder Bremen tapaði 0-1 fyrir Borussia Mönchengladbach.

Úrslit dagsins:

Ingolstadt 0-2 Bayern München

RB Leipzig 0-3 Hamburg

Darmstadt 2-1 Dortmund

Werder Bremen 0-1 Gladbach

Leverkusen 3-0 Frankfurt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×