Fótbolti

Bayern er með bestu vörnina í Evrópu

Manuel Neuer, markvörður Bayern, er besti markvörður heims.
Manuel Neuer, markvörður Bayern, er besti markvörður heims. vísir/getty
Það er ekki bara frábær sóknarleikur sem gerir Bayern München að sigursælu liði.

Varnarleikur liðsins og markvarsla Manuel Neuer er líka í hæsta gæðaflokki. Ekkert lið í Evróuboltanum hefur haldið hreinu jafn oft og Bayern.

Neuer hefur ekki hleypt inn marki í 11 af 14 deildarleikjum í vetur sem er magnaður árangur.

Juventus og franska liðið St. Etienne koma þar á eftir með tíu. Franska liðið þurfti reyndar fleiri leiki til þess að ná þeim árangri og fer því í þriðja sætið á þessum lista.

Barcelona er í fjórða sæti á varnarlistanum en Barca hefur ekki fengið á sig mark í 9 af 14 leikjum. Rennes og Roma koma svo þar á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×