Fótbolti

Bayern býður Vidal fimm ára samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Bayern München hefur hug á að klófesta Sílemanninn Arturo Vidal að sögn þýska dagblaðsins Bild. Fimm ára samningur mun liggja á borðinu fyrir kappann.

Bild þarf að greiða  um 35 milljónir evra fyrir kappann en honum er ætlað að fylla í skarð Bastian Schweinsteiger sem er nú farinn til Manchester United.

„Ég ætla ekki að leyna þeirri staðreynd að við höfum áhuga á honum,“ sagði Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, í viðtali við þýska fjölmiðla. „En ég get ekki staðfest það sem kemur fram í blöðunum - að allt sé klappað og klárt. En við vonumst auðvitað til að leikmaðurinn komi til okkar.“

Vidal er á mála hjá Juventus og varð meistari með landsliði sínu í Suður-Ameríkukeppninni fyrr í sumar. Hann kom sér hins vegar í klandur fyrir ölvunarakstur í miðri keppni en fékk engu að síður áfram að spila með landsliði Síle.

Vidal þekkir vel til í Þýskalandi eftir að hafa spilað með Leverkusen frá 2007 til 2011, er hann gekk í raðir Juventus fyrir 12,5 milljónir evra. Á Ítalíu varð hann fjórum sinnum ítalskur meistari, bikarmeistari og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Vidal var reyndar nálægt því að fara til Bayern árið 2011 en valdi fremur ítalska stórveldið.


Tengdar fréttir

Juventus ítalskur meistari

Juventus varð í dag ítalskur meistari eftir sigur 1-0 á Sampdoria, en þetta var 24. sigur Juventus í 34 leikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×