Viðskipti innlent

Bautinn greiðir 32 milljónir í arð

ingvar haraldsson skrifar
Bautinn hagnaðist um tæplega 15 milljónir á síðasta ári.
Bautinn hagnaðist um tæplega 15 milljónir á síðasta ári. mynd/ægir dagsson
Bautinn ehf., sem rekur samnefndan veitingastað á Akureyri, greiddi 31,5 milljónir í arð á síðasta ári. Félagið er að fullu í eigu Guðmundar K. Tryggvasonar.

Félagið hagnaðist um 14,6 milljónir á síðasta ári en 38 milljónir króna árið 2014. Þá voru gengislán fyrirtækisins leiðrétt sem skýrðu átta milljónir af hagnaði þess árs.

Rekstarhagnaður ársins 2015 nam 23,8 milljónum króna miðað við 45,8 milljónir árið 2014.

Eigið fé félagsins nam 76 milljónum króna í árslok, þar af nemur óráðstafað eigið fé 74 milljónum króna. Eignir félagsins nema 109 milljónum króna og lækka um 54 milljónir milli ára. Í ársreikningnum kemur fram að félagið hafi selt rekstrarfjármuni fyrir 24,9 milljónir á árinu. Handbært fé lækkaði um 33 milljónir á árinu og nam 31,9 milljónum í árslok.

Þá nema skuldir 33,5 milljónum miðað við 71,2 milljónir árið 2014.


Tengdar fréttir

Hagnaður Bautans 38 milljónir

Rekstrarfélag veitingastaðarins Bautans á Akureyri hagnaðist um 38 milljónir á síðasta ári. Hagnaðurinn jókst verulega á milli ára en hann nam 16,5 milljónum króna árið 2013






Fleiri fréttir

Sjá meira


×