Innlent

Bátur slitnaði frá bryggju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bátur slitnaði frá bryggju í Kaldrananesi í Bjarnarfirði á Ströndum nú síðdegis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Báturinn rak mannlausan yfir fjörðinn og upp í fjöru við Reykjavíkursker. Björgunarsveitin Björg á Drangsnesi var kölluð til aðstoðar.

Þessa stundina er verið að skoða hvernig best sé að tryggja bátinn, sem er lítill, yfirbyggður bátur með utanborðsmótor, gegn frekari skemmdum.

Til stendur að draga hann þangað sem er sandfjara og hægt er að koma honum úr sjó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×