Lífið

Batman-hellir í húsi Lady Gaga

Nýja glæsivillan hennar kostaði um þrjá milljarða króna.
Nýja glæsivillan hennar kostaði um þrjá milljarða króna.
Í nýrri glæsivillu söngkonunnar Lady Gaga er leyniherbergi þar sem innblásturinn er Batman-hellirinn.

Gaga greiddi 23 milljónir dala fyrir höllina, eða tæpa þrjá milljarða króna, og er hún í Malibu í Kaliforníu.

Söngkonan keypti eignina af Dan Romanelli, stórlaxi hjá fyrirtækinu Warner Bros, sem er mikill aðdáandi Batman og alls kyns leikfanga. Fimm svefnherbergi og tólf baðherbergi eru í villunni, auk íþróttasalar, vínkjallara, kvikmyndasalar og alls konar annars lúxuss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×