Erlent

Bastilludagurinn haldinn hátíðlegur í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VISIR/AFP
Þjóðhátíðardagur Frakka er haldinn hátíðlegur í dag. Hann nefnist í daglegu tali Bastilludagurinn en þá minnast Frakkar árásarinnar á bastilluna þann 14. júlí árið 1789. Sá atburður markaði upphaf Frönsku byltingarinnar.



Það var bókstaflega öllu til tjaldað á Champs-Élysées í París í dag þegar hver herfylkingin á fætur annarri marseraði niður strætið í marglitum búningum.

Herskrúðgangan er stærsta og elsta reglulega herskrúðganga sem haldin er í heiminum í dag. Frakklandsforseti Francois Hollande tók þátt í hátíðarhöldunum, veifaði mikið og kyssti börn.


Herinn lék stóra rullu í hátíðahöldunum.VISIR/AFP
Francois Hollande og hershöfðinginn Pierre de Villiers.
Spahi herdeildin fór mikinn í hátíðahöldunum.VISIR/AFP
Friðardúfurnar flögruðu um Parísarborg í tilefni dagsins.VISIR/AFP
Herþotur mynduðu franska fánann yfir Sigurboganum.Visir/AFp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×