Körfubolti

Basl á Kanínunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Axel skoraði átta stig í leiknum í kvöld.
Axel skoraði átta stig í leiknum í kvöld. vísir/stefán
Svendborg Rabbits, sem Arnar Guðjónsson þjálfar, tapaði 67-75 fyrir toppliði Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Þetta var þriðja tap Svendborg í síðustu fjórum leikjum sínum.

Kanínurnar unnu fjóra af fyrstu sex leikjum sínum en það hefur hallað undan fæti á undanförnum vikum. Svendborg er í 4. sæti deildarinnar með tíu stig eftir tíu umferðir.

Þetta var annað tap Svendborg fyrir Horsens á skömmum tíma en Horsens vann bikarleik liðanna á mánudaginn í síðustu viku, 77-83.

Axel Kárason var í byrjunarliði Svendborg og lék í 23 mínútur. Skagfirðingurinn skoraði átta stig og tók tvö fráköst. Axel hitti úr þremur af sjö skotum sínum utan af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×