Enski boltinn

Barry: Costa beit mig ekki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gareth Barry, leikmaður Everton, segir að Diego Costa hafi ekki bitið sig í leik liðanna í enska bikarnum á Goodison Park í gærkvöldi.

Costa fékk sitt annað gula spjald í leiknum undir lokin eftir samskipti sín við Barry. Hann virtist bíta hann en viðbrögð Barry voru aftur á móti ekki á þá leið í leiknum.

„Ég hef séð töluverða umræða um þetta atvik en svo það komi skýrt fram þá beit hann mig ekki,“ segir Barry.

Leikurinn fór 2-0 fyrir Everton og er liðið komið áfram í undanúrslit bikarsins. Romelu Lukaku gerði bæði mörk Everton í leiknum. Hér að ofan má sjá atvikið fræga.


Tengdar fréttir

Beit Costa Barry? | Sjáðu rauða spjaldið

Diego Costa, leikmaður Chelsea, fór mikinn í leik liðins gegn Everton í ensku bikarkeppninni í dag en liðið tapaði illa, 2-0, á útivelli og er úr leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×