Enski boltinn

Barnes rappar og Ruddock strippar

Fyrrum leikmenn Liverpool sýna á sér ótrúlegar hliðar í skemmtiþætti á Sky.

Íslandsvinurinn John Barnes gerir sér meðal annars lítið fyrir og rappar í þætti sem fer í sýningu um mánaðarmótin. Hann tekur lagið Rapper's Delight með Sugarhill Gang og fær meira að segja aðstoð frá öðrum fyrrum leikmanni Liverpool, Jamie Redknapp.

Þátturinn heitir A League Of Their Own og er afar vinsæll.

Eitt eftirminnilegasta atriði þáttarins í fyrra var þegar Neil Ruddock, annar fyrrum leikmaður Liverpool, strippaði fyrir fyrrum félaga sína í Liverpool, Jamie Carragher og Redknapp.

Rappið má sjá í spilaranum að ofan en strippið er hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×