Lífið

Barnastjarna látin aðeins 21 árs að aldri

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikkonan Skye McCole Bartusiak, sem er hvað best þekkt fyrir að leika dóttur Mel Gibson í kvikmyndinni The Patriot, lést í gær, aðeins 21 árs að aldri.

Samkvæmt fréttasíðunni TMZ dó Skye í svefni á heimili fjölskyldu sinnar í Texas en dánarorsök er enn ókunn.

Skye var aðeins sjö ára þegar hún landaði hlutverki í The Patriot. Þá lék hún einnig í Don‘t Say a Word með Michael Douglas og Cider House Rules með Charlize Theron. Hún fór líka með smærri hlutverk í sjónvarpsþáttum á borð við Lost, 24 og House.

Samkvæmt lögreglunni fundust engar vísbendingar um að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti eða að Skye hafi framið sjálfsmorð. Lík hennar verður krufið á næstu dögum.

Með Mel Gibson í The Patriot.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×