Skoðun

Barnasáttmálinn 25 ára!

Margrét María Sigurðardóttir og Erna Reynisdóttir og Bergsteinn Jónsson skrifa
Barnaheill, umboðsmaður barna og UNICEF óska öllum börnum til hamingju með afmæli Barnasáttmálans, en í dag er hann 25 ára. Heill aldarfjórðungur er liðinn frá því að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að tryggja börnum sjálfstæð mannréttindi. Barnasáttmálinn er í dag útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims og er afmæli hans fagnað um allan heim á þessum degi.

Nú er tilefni til að líta yfir farinn veg og gleðjast yfir öllu því sem hefur áorkast í réttindabaráttu barna á þessum 25 árum. Þó að Ísland teljist fyrirmynd innan alþjóðasamfélagsins með tilliti til lífsskilyrða og réttinda barna, verðum við að vera meðvituð um þá ábyrgð sem felst í þessu hlutverki. Okkur miðar vel, en betur má ef duga skal – stuðla þarf markvisst að innleiðingu réttinda barna ef tryggja á að sýn Barnasáttmálans verði að veruleika fyrir öll börn.

Hinn 20. febrúar 2013 samþykkti Alþingi Íslendinga einróma að lögfesta Barnasáttmálann. Sáttmálinn hefur því lagalegt gildi hér á landi. Barnasáttmálinn boðar byltingarkennda sýn á stöðu barna. Sáttmálinn viðurkennir að börn séu viðkvæmur hópur sem tryggja þurfi sérstaka vernd og umönnun. Samhliða því gengur hann út frá því að börn séu fullgildir þátttakendur í samfélaginu og búi yfir þekkingu og reynslu sem sé verðmæt fyrir samfélagið.

Ein af fjórum grundvallarforsendum sáttmálans gengur út á að börn eigi rétt til að tjá sig í öllum málum sem þau varða og skyldu hinna fullorðnu til þess að taka réttmætt tillit til skoðana barna. Það er lítil lýðræðisleg hefð fyrir því í samfélagi okkar að börnum sé gefið tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanir sem snerta þau. Slíkt krefst vitundarvakningar um lýðræði og þátttöku barna, jafnt sem fræðslu um hvernig réttindi þeirra eru sett í hversdagslegt samhengi. Aðrar grundvallarforsendur Barnasáttmálans eru að öll börn eigi rétt á að lifa og þroskast, ekki megi mismuna börnum með nokkrum hætti og að allar ákvarðanir sem varða börn skulu grundvallaðar á því sem þeim er fyrir bestu.

Barnasáttmálinn er mikilvægt skjal sem hefur alla burði til að bæta líf okkar allra. Séum við samtaka í að halda réttindum barna á lofti sköpum við betra samfélag fyrir börnin okkar. Þannig byggjum við grunn að framtíð betra samfélags. Á þessari vegferð er mikilvægt að fræða börn um réttindi þeirra. Ef börn eru meðvituð um þau eru þau líklegri til að vera talsmenn réttinda sinna og samferðamanna sinna. Þau verða sterkari einstaklingar sem láta sig óréttlæti varða, í hvaða mynd sem það birtist. Barnasáttmálinn er hagnýtt verkfæri sem getur hjálpað okkur að skapa réttlátara og betra samfélag.

Tökum höndum saman og stöndum vörð um réttindi allra barna í krafti Barnasáttmálans!




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×