Innlent

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna innleiddur í Kópavogi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá vinstri: Ármann Kr. Ólafsson, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson, Hjördís Ýr Johnson, Karen Elísabet Halldórsdóttir,
Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal.
Frá vinstri: Ármann Kr. Ólafsson, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson, Hjördís Ýr Johnson, Karen Elísabet Halldórsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson, Ása Richardsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal. Mynd/Kópavogsbær
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í dag tillögu um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. Allir ellefu bæjarfulltrúar voru flutningsmenn tillögunnar sem samþykkt var einum rómi, samkvæmt tilkynningu frá Kópavogsbæ.

„Innleiðingin verður unnin í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Unicef. Ekkert sveitarfélag á Íslandi hefur innleitt sáttmálann þó að þau vinni með margvíslegum hætti í anda hans við að tryggja réttindi barna.“

Kópavogsbær verður annað sveitarfélagið á Íslandi sem vinna mun með Unicef á Íslandi að innleiðingu sáttmálans en Unicef er í samstarfi við Akureyrarbæ að innleiðingu barnasáttmálans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×