Erlent

Barnalegt að halda að fall Grikklands hafi ekki geigvænleg áhrif á alla Evrópu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/EPA
Evrópusambandið hefur gefið grískum stjórnvöldum frest fram á fimmutdag til að leggja fram nýjar tillögur að samkomulagi við lánardrottna landsins. Þetta varð niðurstaða fundar leiðtoga evruríkjanna í Brussel í kvöld, en á sunnudag hefur verið boðaður annar fundur leiðtoga allra Evrópusambandsríkja.

Evruríkin fóru fram á nýjar tillögur í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu Grikkja sem fram fóru um helgina um fyrri samninga.

Fyrir fund dagsins í dag lögðu grísk stjórnvöld til breytingar á fyrirliggjandi samningsdrögum sem að þeirra sögn tók mið af „umboði þjóðaratkvæðagreiðslunnar.“

Donald Tusk, forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins, sagði að þetta væri mikilvægasta stund í sögu evrusvæðisins í samtali við útlenda fjölmiðla.

„Lokafresturinn rennur út í vikunni,“ sagði Tusk og vísaði þar til nýjustu skilyrða Evrópusambandsins.

Hann bætti við að greiðslufall Grikkja og fall gríska bankakerfisins myndi hafa áhrif á alla Evrópu og að allir þeir sem tryðu öðru væru blindaðir af barnslegri einfeldni.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði að leiðtogar evruríkjanna virtu niðurstöður grísku þjóðaratkvæðagreiðslunnar en bæru á sama tíma sameiginlega ábyrgð á framtíð Evrópusambandsins.

Hún bætti við að Grikkir þyrftu nú að vinna að langtíma lausn á vandanum, en ekki skammgóðum vermi.


Tengdar fréttir

Grikkir leggja til 30 prósenta skuldaniðurfellingu í dag

Búist er við því að Grikkir leggi fram nýja áætlun á neyðarfundi leiðtoga evruþjóðanna í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segist tilbúinn að veita Grikkjum hjálparhönd. Fjármálaráðherra Grikkja sagði óvænt af sér í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×