Innlent

Barnablað Morgunblaðsins sakað um „letirasisma“ vegna teiknaðrar gátu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hér má sjá umrædda gátu sem birtist í Barnablaði Morgunblaðsins og vakið hefur töluverða athygli.
Hér má sjá umrædda gátu sem birtist í Barnablaði Morgunblaðsins og vakið hefur töluverða athygli. Mynd/Samsett
Teiknuð gáta sem birtist í sunnudagsútgáfu Barnablaðs Morgunblaðsins hefur verið gagnrýnd fyrir að endurspegla úreltar staðalímyndir um fólk af ýmsum kynþáttum. Blaðið segir gátuna ekki í takt við tímann og harmar birtingu hennar.

Eins og sést á meðfylgjandi myndum er gátan undir yfirskriftinni „Hver býr í hvaða húsi?“ og eiga krakkar að tengja viðeigandi íbúa við sitt hús. Svo virðist sem gátan eigi að sýna fólk úr mismunandi heimshornum en óhætt er að segja að um nokkuð einfaldar birtingarmyndir þess sé að ræða.



Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.Vísir/Eyþór
Sjá einnig: Jakob, áður Sambó, hefur verið tekinn niður

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir aðgerðasinni er á meðal þeirra sem furða sig á birtingu gátunnar. Hún deilir mynd af gátunni og segir teikningarnar „ala á úreltum staðalímyndum um fólk frá öðrum heimshlutum.“

„Ef þetta lýsir ekki fullkomlega það [sic] sem ég kýs að kalla „letirasismi“ þá veit ég ekki hvað,“ bætir Ugla við.

Þá spyr Ugla hvort Morgunblaðinu þyki umrædd gáta viðeigandi til birtingar. „Er ekki kominn tími á að vakna aðeins og vera ekki algjörlega úr takt við tímann og tíðarandann?“

Hefði hvorki átt að birtast í blaði fyrir börn né öðru blaði

Í svari Morgunblaðsins við fyrirspurn Vísis um málið segir að gátan hafi ekki átt að rata í Barnablaðið og að vantað hafi upp á vandlega yfirferð.

„Þegar verið er að nota eldra efni í bland við nýtt er alveg sérstaklega mikil þörf á að fara vandlega yfir. Í þessu tilviki vantar því miður upp á það. Þessi gáta er klárlega ekki í takt við tímann og hefði ekki átt að birtast, hvorki í blaði fyrir börn né öðru blaði,“ segir í svari blaðsins við fyrirspurn Vísis.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sprottið hefur upp umræða um „rasískar merkingar“ á Íslandi. Árið 2014 tók veitingahúsið Svarta kaffi við Laugaveg niður styttu af hörundsdökkum þjóni vegna netmótmæla. Þótti styttan sýna rasískt myndmál og ala á gömlum, úreltum staðalímyndum um svart fólk.

Umrædd gáta birtist á síðu 6 í Barnablaði Morgunblaðsins, sunnudagsblaði.Skjáskot/Morgunblaðið

Tengdar fréttir

Svara hatri með ást

„Margt mis fagurt hefur verið sagt um okkur á samfélagsmiðlum og jafnvel í einkaskilaboðum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×