Erlent

Barn lést í íkveikju

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Átján mánaða palestínskur drengur fórst þegar eldur var kveiktur í tveimur íbúðarhúsum í bænum Douma á Vesturbakkanum í nótt.  Foreldrar drengsins og eldri bróðir særðust alvarlega í árásinni. Lögreglu grunar ísraelska landtökumenn um verknaðinn, en þeir flúðu vettvang og er þeirra nú leitað.

Brennuvargarnir skildu eftir sig veggjakrot með skilaboðunum „hefnd“á hebresku, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×