Erlent

Barist á götum Mosul í fyrsta sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Írakskir hermenn nærri Mosul.
Írakskir hermenn nærri Mosul. Vísir/AFP
Írakski herinn er nú kominn inn í borgina Mosul í fyrsta sinn í rúm tvö ár. Hermenn og aðrar sveitir hliðhollar stjórnvöldum í Bagdad réðust í dag inn í borgina úr austri, en heimamenn hafa áhyggjur af öryggi sínu í komandi átökum.

Þá hefur flóttaleið ISIS-liða verið lokað.

Búist er við því að stjórnarliðar þurfi að berjast hús úr húsi í borginni þar til vígamenn Íslamska ríkisins hafa verið sigraðir.

Yfirlit yfir baráttuna.Vísir/GraphicNews
Almennir borgarar Mosul hafa staðið frammi fyrir tveimur valkostum. Það er að halda kyrru fyrir í borginni eða flýja og takast á við óvissuna sem fylgir því að halda til í flóttamannabúðum. Þar að auki treysta íbúar ekki stjórnarliðum, og hefur íbúum oft á tíðum verið skipað að halda sig á heimilum sínum.

Samkvæmt CNN taka nú um hundrað þúsund stjórnarliðar þátt í aðgerðunum í Mosul. Þar á meðal eru hermenn, vopnaðar sveitir frá Íran, vopnaðar sveitir sjíta, Kúrdar og margar aðrar fylkingar. Yfirmenn hersins segja þó að einungis írakar muni fara inn í borgina þar sem íbúar eru súnnítar að miklum meirihluta.

Talið er að um fimm þúsund vígamenn verji Mosul. Abu Bakr al-Baghdadi, æðsti yfirmaður ISIS, sendi frá sér hljóðupptöku í nótt þar sem hann hvatti vígamenn sína til að berjast til hins síðasta.

Blaðamenn AP fréttaveitunnar hafa rætt við íbúa Mosul sem hafa flúið. Þau segjast hafa fengið mismunandi skipanir um hvort þau ættu að flýja eða vera í borginni.

Yfirmenn hersins sem blaðamenn ræddu við að verið væri að skipa fólki að halda kyrru fyrir svo auðveldara væri að bera kennsl á vígamenn ISIS sem hafa falið sig á meðal almennra borgara. Þá búa um milljón manns í borginni og herinn óttast að fá allt þetta fólk á flakk um svæðið.


Tengdar fréttir

Amnesty sakar hersveitir í Írak um pyntingar

Hersveitir, sem þó eru ekki hluti af írakska hernum, en leggja honum lið í sókninni gegn ISIS samtökunum í Mosul, eru grunaðar um pyntingar gegn mönnum og drengjum í nærliggjandi þorpum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×