Tónlist

Barði með frábært lag og myndband úr leikverkinu Brot úr hjónabandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega flott lag frá Barða.
Virkilega flott lag frá Barða.
Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson hefur nú gefið út nýtt lag og myndbandið fyrir sýninguna Brot úr hjónabandi sem er í sýningu í Borgarleikhúsinu. Lagið ber nafnið Dive into the deep blue sea.

Sýningin hefur fengið glimrandi góða dóma og er uppselt á allar 18 sýningarnar sem framundan eru.

Verkið fjallar um fyrirmyndarhjón sem gengur vel í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja þar til annað kemur í ljós.

Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin og frelsið – og öll uppáhaldslögin.

Verkið byggir á sex þátta sjónvarpsseríu Ingmars Bergman sem sýnd var í sænska sjónvarpinu árið 1973 við svo miklar vinsældir að götur Svíþjóðar tæmdust. Uppsetning Borgarleikhússins er í leikstjórn Ólafs Egilssonar sem einnig gerir leikgerðina.

Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið sem Barði samdi sérstaklega fyrir verkið en það er Esther Talía Casey sem syngur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×