Handbolti

Barcelona vann enn einn sigurinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðjón Valur fagnar hér marki í leik með Barcelona.
Guðjón Valur fagnar hér marki í leik með Barcelona. Vísir/Getty
Barcelona vann öruggan sextán marka sigur á Guadalajara í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en sigur Barcelona var aldrei í hættu.

Barcelona náði strax forskotinu í upphafi leiksins og leiddi 21-11 í hálfleik. Leikmönnum liðsins tókst að bæta við forskotið í seinni hálfleik og var sigurinn aldrei í hættu í seinni hálfleik.

Guðjón Valur Sigurðsson var að vanda í liði Barcelona í leiknum en hann skoraði úr öllum fimm skotum sínum í leiknum.

Leikur Barcelona næst gegn ungverska félaginu SC Szeged í Meistaradeildinni á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×