Handbolti

Barcelona valtaði yfir Montpellier

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur fagnar í leik með Barcelona.
Guðjón Valur fagnar í leik með Barcelona. vísir/epa
Barcelona jók í dag forskot sitt á toppi B-riðils Meistaradeildar Evrópu.

Barcelona fór þá til Frakklands og lagði Montpellier, 23-31. Staðan í hálfleik var 11-15 fyrir Börsunga.

Guðjón Valur Sigurðsson átti góðan leik fyrir spænska stórliðið. Hann skoraði 4 mörk úr 4 skotum. Markahæstur í liði Barcelona var Makedóninn Kiril Lazarov sem skoraði 9 mörk úr 12 skotum.

Barcelona er með 17 stig á toppi riðilsins en Kielce og Rhein-Neckar Löwen eru með 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×